Línuskipið Jóhanna Gísladóttir ÍS-7

Vísir hf. er útgerðar-, framleiðslu- og sölufyrirtæki. Starfstöðvar þess eru á fjórum stöðum á landinu; í Grindavík, á Þingeyri, á Húsavík og á Djúpavogi. Höfuðstöðvar Vísis hf eru í Grindavík. Vísir gerir út 5 línuskip, Páll Jónsson GK-7,Krístin ÞH-157,Sighvatur GK-57;Fjölnir SU-57 og Jóhönnu Gísladóttir ÍS-7.

Upplýsingar um okkur

Nafn:

Jónanna Gísladóttir ÍS-7 ( 1076 ) TF-WA

Farsími:

Brú 856-5780

MSN netfang:

johannagk@sjopostur.is / Brú

Afmælisdagur:

Júní 1968

Heimilisfang:

Höfuðstöðvar í Grindavík

Staðsetning:

Þingeyri-Grindavík-Djúpivogur-Húsavík

Heimasími:

Áhöfn 856-5781

Önnur vefsíða:

www.visirhf.is

Um:

Á Jóhönnu Gísladóttir eru 14 menn í áhöfn í hverri veiðiferð. Skipstjóri er Þórður Pálmason.Skipstjóri/1.Stýrimaður Haraldur Einarsson.1.Stýrimaður Kristinn Þórarinsson.Yfirvélstjóri Þorbjörn Jónsson.

Tenglar

Flettingar í dag: 426
Gestir í dag: 41
Flettingar í gær: 188
Gestir í gær: 38
Samtals flettingar: 143792
Samtals gestir: 29453
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 21:15:39

12.05.2012 23:45

Sjómannadagurinn 1-3 júni 2012

Sjómanna- og fjölskylduhátíðin Sjóarinn síkáti í Grindavík hefur fest sig í sessi sem ein skemmtilegasta og fjölbreyttasta bæjarhátíð landsins haldin um Sjómannadagshelgina, 1. - 3. júní 2012, til heiðurs íslenska sjómanninum og fjölskyldu hans. Hátíðin hefur vaxið með hverju árinu, þar er fjölbreytt dagskrá alla helgina en mikið er lagt upp úr vandaðri barnadagskrá. Líkt og undanfarin þrjú ár verður bænum skipt upp í fjögur litahverfi.

hægt sjá nánar á vef bæjarins www.grindavik.is 


12.05.2012 23:03

Laugardagskvöld

Erum að klára draga 2. lögn í þessari 21.veiðiferð á árinu, þetta er búið að vera skítsæmilegt og erum við bara bíða eftir þessu stormi sem á að ganga hér yfir og erum við  ekki óvanir því á þessari skútu. 
 
Hér erum við á heimavelli !

09.05.2012 23:24

Löndun í fyrramálið

það verða fimmtudagar löndunardaganir okkar fram að sjómannadegi skv þessu kerfi okkar sem ekki er hægt að treysta 100%, við erum búnir að vera veiðum á ruslahaugunum við Vestmannaeyjar og búnir að  standa okkur með prýði að safna rusli í poka. 


06.05.2012 12:49

Sunnudagur

3. lögnin að detta í hafið búið að vera rólegt yfir þessu, erum búnir að vera á veiðum á ruslahaugunum við Vestmannaeyjar. Gott veður á bleyðunni :) 

04.05.2012 05:24

Útvegsblaðið

Icelandic fær MSC vottun

  • Heimild:Útvegsblaðið
Icelandic fékk skírteinið á Evrópsku sjávarafurðasýningunni í Brussel í lok apríl.

Fyrir nokkru lauk Icelandic við vottun samkvæmt MSC staðli en það var vottunarstofan DNV sem vann þá vinnu. Vottunin nær til alls þorsks og ýsu sem Icelandic selur frá Íslandi. Í Bretlandi á félagið fyrirtækin Seachill, Coldwater og Icelandic UK, sem meðal annars selja þessar fisktegundir. Icelandic fékk skírteinið á Evrópsku sjávarafurðasýningunni í Brussel í lok apríl.

Eins og áður sagði nær vottunin til alls þorsks og ýsu frá Íslandi og allra veiðarfæra sem við veiðarnar eru notaðar.

Í fréttatilkynningu frá MSC, Marine Stewardship Council, segir Lárus Ásgeirsson, framkvæmdaastjóri Icelandic Group, að félagið sé mjög ánægt með að hafa fengið þessa vottun. Ísland eigi sér langa sögu í sölu hágæða sjávarafurða og nú sé hægt að selja þær sem sjálfbærar eftir óháða vottun samkvæmt stöðlum MSC.

04.05.2012 05:11

af vef moggans

Alvarlegir gallar á frumvarpinu

Alvarlegir gallar eru í frumvarpi um veiðigjöld, að mati tveggja sérfræðinga sem atvinnuveganefnd Alþingis fékk til að meta áhrif veiðigjalda á sjávarútveginn. Í greinargerð þeirra segir að aðferð frumvarpsins hafi "skipulega ofmetið rentu, svo nemur tugum prósenta hefði henni verið beitt á undanförnum árum."

Atvinnuveganefnd fékk Daða Má Kristófersson, dósent við Háskóla Íslands og Stefán B. Gunnlaugsson, lektor við Háskólann á Akureyri, til að meta áhrif frumvarpsins.

Í greinargerð þeirra segir að alvarlegur ágalli sé á frumvarpinu hvað það varðar að gögn hafi ekki verið uppfærð. Álagning veiðigjalds byggi þannig á tveggja ára gömlum rekstrargögnum sem þurfi að uppfæra. "Sem dæmi hefði sérstakt veiðigjald verið 140% af metinni auðlindarentu ef aðferð frumvarpsins um uppfærslu gagna hefði verið beitt á tímabilinu 2006-2010. Augljóst er að ekki verður búið við svo umfangsmikla skekkju."

Í skýrslunni segir að sú aðferðarfræði að meta tilflutning auðlindarentu frá veiðum til vinnslu í frumvarpi ríkisstjórnarinnar um veiðigjöld sé ónothæf. Sú aðferð sem notuð er í frumvarpinu leiði til tvísköttunar á þeim umframhagnaði sem önnur vinnsla uppsjávarfisks en bræðsla skapar. Umfang þessarar skattheimtu hlaupi á hundruðum milljóna á ári.

Bent er á að fjármagnsþörf í veiðum og vinnslu sé vanmetin. Mat frumvarpsins á fjármagnskostnaði sé tilviljunarkennt.

"Að teknu tilliti til allra þessara ágalla er niðurstaðan sú að umfang gjaldtöku samkvæmt frumvarpinu sé langt umfram það sem útgerðin getur staðið undir. Verulegar breytingar þarf að gera á aðferðarfræði frumvarpsins við mat á auðlindarentu áður en hægt er að ákvarða hvað mundi teljast hófleg gjaldtaka. Álagning sem byggir á meðaltalsgögnum heillar atvinnugreinar, gögnum sem aldrei var safnað í þeim tilgangi að meta auðlindarentu, þarf að vera hófleg. Núverandi gagnagrunnur leyfir ekki nákvæmt mat á auðlindarentu sem sjávarútvegurinn skapar. Nauðsynlegt er að fram fari rannsókn á umfangi auðlindarentu og aðferðum sem hægt er að nota til að meta hana áður en ráðist er í skattlagningu auðlindarentu í því umfangi sem frumvarpið gerir ráð fyrir."

Í greinargerð Daða og Stefáns er skoðuð fjárhagsstaða 23 sjávarútvegsfyrirtækja í aflamarkskerfinu. Fram kemru að fjárhagsstaða þessara fyrirtækja sé misjöfn. Staða ellefu fyrirtækja sé góð; þau séu annað hvort skuldlaus eða mjög fljót að greiða upp skuldir. Sjö fyrirtæki séu í erfiðri stöðu og staða fimm fyrirtækja sé slæm. Líklegt sé að að komi til fjárhagslegrar endurskipulagningu þeirra á næstu misserum.

Í skýrslunni segir að ekkert af 10 stærstu útgerðarfyrirtækjum landsins séu í hópi þessara fimm sem séu í verstri stöðu. Þessi fimm séu staðsett á vesturhluta landsins.

Fjallað er einnig um tólf fyrirtæki í krókaaflamarkskerfinu (litla kerfinu). Fram kemur að fjárhagsstaða þeirra sé mjög mismunandi, "en yfirleitt er hún afleit". Þessi fyrirtæki eigi sér því fáa möguleika

heimild:mbl.is

04.05.2012 04:19

Brottför Grindavík

Fórum í gær út frá Grindavík um kl 1800 og stefnan tekinn austur í vorboðann, blíðuveður á slóðinni. 

 

02.05.2012 08:46

Miðvikudagur

Löndun í fyrramálið Grindavík

01.05.2012 10:34

Staðan á kvótanum skv vef Fiskistofu.

 
Þorskur
Aflamark
140.667
Afli t/ aflamarks
107.160
76.2%
Þorskur
 
Ýsa
Aflamark
38.780
Afli t/ aflamarks
30.632
79%
Ýsa
 
Ufsi
Aflamark
43.245
Afli t/ aflamarks
25.090
58%
Ufsi
 
Karfi/gullkarfi
Aflamark
41.458
Afli t/ aflamarks
33.386
80.5%
Karfi/gullkarfi
 
Langa
Aflamark
7.496
Afli t/ aflamarks
5.252
70.1%
Langa
 
Keila
Aflamark
6.431
Afli t/ aflamarks
2.941
45.7%
Keila
 
Steinb.
Aflamark
9.128
Afli t/ aflamarks
6.008
65.8%
Steinb.
 
Skötuselur
Aflamark
3.136
Afli t/ aflamarks
1.564
49.9%
Skötuselur
 
Grálúða
Aflamark
12.503
Afli t/ aflamarks
7.700
61.6%
Grálúða
 
Skarkoli
Aflamark
6.358
Afli t/ aflamarks
3.585
56.4%
Skarkoli
 
Þykkval.
Aflamark
1.749
Afli t/ aflamarks
858
49.1%
Þykkval.
 
Langlúra
Aflamark
1.337
Afli t/ aflamarks
752
56.2%
Langlúra
 
Sandkoli
Aflamark
895
Afli t/ aflamarks
565
63.1%
Sandkoli
 
Skrápfl.
Aflamark
198
Afli t/ aflamarks
67
33.8%
Skrápfl.
 
Síld
Aflamark
48.342
Afli t/ aflamarks
46.642
96.5%
Síld
 
Loðna
Aflamark
591.033
Afli t/ aflamarks
584.545
98.9%
Loðna
 
Kolmunni
Aflamark
60.096
Afli t/ aflamarks
35.533
59.1%
Kolmunni
 
NÍ-Síld
Aflamark
98.432
Afli t/ aflamarks
0
0%
NÍ-Síld
 
NÍ-Síld 2
Aflamark
22.120
Afli t/ aflamarks
0
0%
NÍ-Síld 2
 
Humar
Aflamark
692
Afli t/ aflamarks
265
38.3%
Humar
 
NL Þorsk
Aflamark
5.792
Afli t/ aflamarks
5.481
94.6%
NL Þorsk
 
RL Þorsk
Aflamark
3.620
Afli t/ aflamarks
1.082
29.9%
RL Þorsk
 
Fl.rækja 3L
Aflamark
131
Afli t/ aflamarks
0
0%
Fl.rækja 3L
 
If.rækja
Aflamark
1.258
Afli t/ aflamarks
1.272
101.1%
If.rækja
 
Úk.innan
Aflamark
9.606
Afli t/ aflamarks
0
0%
Úk.innan
 
Sk.selur 2
Aflamark
28
Afli t/ aflamarks
28
100%
Sk.selur 2
 
Djúpkarfi
Aflamark
12.908
Afli t/ aflamarks
10.590
82%
Djúpkarfi

29.04.2012 11:28

Á veiðum

það var farið út um kl 1800 á föstudaginn.

27.04.2012 00:00

Löndun

Löndun í fyrramálið Grindavík 


26.04.2012 11:55

Heimild Líu vefurinn


26. Apríl 2012 | ÚTVEGURINN

537 sjómenn mótmæla frumvörpum sjávarútvegsráðherra

Forsíðumynd 08537 sjómenn hafa skrifað undir mótmæli gegn frumvörpum um breytingu á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Þeir mótmæla þeirri grímulausu aðför að kjörum sínum sem við blasir í þeim frumvörpum sem fram eru komin um breytingar á stjórn fiskveiða.

Í yfirlýsingunni segir orðrétt: "Við sem stöndum að þessari yfirlýsingu skorum á alþingismenn að taka ábyrga afstöðu með tilliti til þeirra hörmulegu afleiðinga sem frumvörpin kæmu til með að hafa á afkomu sjómannastéttarinnar og þar með þjóðfélagsins í heild. Framtíðin er í húfi."

Hægt er að sjá nöfn skipanna sem sem sjómennirnir starfa á hér fyrir neðan:

Ágúst GK 95

Jóhanna Gísladóttir ÍS 7
Baldvin Njálsson GK 400 Jón Kjartansson SU 111
Barði NK 120 Jóna Eðvalds SF 200
Beitir NK 123 Kaldbakur EA 1
Bjarni Ólafsson AK 70 Mánaberg ÓF 42
Björgúlfur EA 312 Oddeyrin EA 210
Gandí VE 171 Páll Pálsson ÍS 102
Guðmundur VE 29 Sigurbjörg ÓF 1
Guðmundur í Nesi RE 13 Snæfell EA 310
Hákon EA 148 Stefnir ÍS 28
Helga María AK 16 Sturlaugur H. Böðvarsson AK 10
Hrafn GK 111 Vigri RE 71
Hrafn Sveinbjarnarson GK 255 Vilhelm Þorsteinsson EA 11
Huginn VE 55 Þór HF 4
Höfrungur lll AK 250 

26.04.2012 00:06

Tekið af vef Líú

24. Apríl 2012 | ÚTVEGURINN

Frumvörpin verði dregin til baka

Landssamband íslenskra útvegsmanna, Samtök fiskvinnslustöðva og Samtök atvinnulífsins hafa sent atvinnuveganefnd Alþingis sameiginlega umsögn um frumvörp til breytinga á lögum um stjórn fiskveiða og veiðigjöld. Með umsögninni fylgir álitsgerð LEX lögmannsstofu og endurskoðunarfyrirtækisins Deloitte.

Samtökin eru í öllum aðalatriðum ósammála efni frumvarpanna og leggja til að þau nái ekki fram að ganga.

Verði frumvörpin að lögum munu þau hafa alvarleg áhrif á íslenskan sjávarútveg og efnahagslíf:

  • Af 75 sjávarútvegsfyrirtækjum sem endurskoðunarfyrirtækið Deloitte hefur lagt mat á verða 53 gjaldþrota ef frumvörpin ná fram að ganga.
  • Áhrifin verða mjög neikvæð á öll fyrirtæki í greininni bæði vegna ofurskattlagningar og fjölmargra annarra atriða s.s. skamms afnotatíma aflaheimilda, skerðingar aflaheimilda og stóraukinnar pólitískrar úthlutunar, ríkisleigu aflaheimilda, banns við framsali aflaheimilda og virðisrýrnunar og afskrifta þeirra.
  • Með frumvörpunum verður dregið úr verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs, innleidd skammtímahugsun og grafið undan ábyrgri umgengni um fiskistofnana.
  • Frumvörpin munu hafa mjög neikvæð keðjuverkandi áhrif á fyrirtæki í tengdum greinum og sveitarfélög um land allt, vegna minni fjárfestinga og lakari starfskjara.
  • Í áliti LEX lögmannsstofu eru gerðar alvarlegar athugasemdir við frumvarp til laga um veiðigjöld með hliðsjón af kröfum 40. gr og 77. gr. stjórnarskrárinnar um skattlagningu. Þá er talið að það fyrirkomulag sem felst í frumvörpunum fáist ekki staðist eignarréttarákvæði 72. gr. stjórnarskrárinnar án þess að til bótaskyldu ríkisins stofnist.

Fyrri frumvörp ríkisstjórnarinnar um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða sem unnin hafa verið án aðkomu og sjónarmiða atvinnugreinarinnar hafa reynst ónothæf. Alvarlegar athugasemdir sjávarútvegsins og annarra atvinnugreina, sveitarfélaga, lánastofnana, sérfræðinga á sviði hagfræði, endurskoðunar og lögfræði auk fjölmargra annarra aðila sýna að það sama gildir um fyrirliggjandi frumvörp.

Samtökin skora á stjórnvöld að draga frumvörpin til baka. Sátt um endurskoðun á lögum um stjórn fiskveiða næst ekki nema með aðkomu atvinnugreinarinnar sjálfrar, þeirra sem best þekkja til starfsemi sjávarútvegsins.

Umsagnir LÍÚ, SF og SA má lesa hér.

Umsögn Deloitte má lesa hér.

Umsögn LEX má lesa hér.

25.04.2012 23:51

Miðvikudagur

4. lögnin er að klárast og 5 og síðasta lögnin á leiðinni í hafið í nótt,hér búið að vera bongó blíða alla veiðiferðina enn vorboðinn tregur að láta sjá sig :) 

við verðum í landi skv plani eldsnemma á föstudagsmorgun kl 11:33 emoticon  


21.04.2012 22:28

Laugardagur löndun

Við komum í land um kl 12 í dag og út aftur um kvöldmat, við vorum búnir að vera á veiðum á fjöllunum sem er ekki skemmtilegur staður fyrir línuveiðar.